Glerverkstæði
Dröfn Guðmundsdóttir


Íslensk list

Dröfn Guðmundsdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, myndhöggvaraskor,  1993. Fljótlega að loknu námi varð gler fyrir valinu sem viðfangsefni hennar og hún hóf ferilinn með samstarfi við galleríið Hjá þeim við Skólavörðustíg sem kom verkum hennar á framfæri. 

Síðar stofnuðu 10 listakonur galleríið Listakot við Laugaveg og var Dröfn ein af stofnendum þess. 
Hún vann við glerbræðslu á verkstæði sínu að Fálkagötu 30b og eftir að Listakot hætti, þ.e. á árinu 2000, stofnaði  Dröfn fyrirtæki um verk sín sem heitir Íslensk list (Icelandic art) og hefur starfað undir því nafni síðan.

Dröfn hefur auk þess verið leiðsögumaður erlendra ferðamanna um Ísland og á ferðum sínum hefur hún tekið ljósmyndir af náttúru landsins í öllum sínum myndum.

Dröfn hefur haldið sýningar hérlendis og erlendis, hvorutveggja glerverk og ljósmyndir.
 



HeimDröfn GuðmundsdóttirÍslensk listIcelandicartFerðalög / TripsGlerverkLjósmyndirListaverkHafa samband